Friðhelgisstefna
Skilmálar
Vefverslunin Baxter.is er rekin af M1A ehf.
Kt. 470224-2900
VSK-númer: 151856
M1A ehf. er umboðsaðili Barf Aps á Íslandi og selur vörur Barf Aps undir merkjum Baxter.is.
Verð
Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK).
Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.
Baxter.is áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pöntun ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun.
Afgreiðsla pantana
Allar pantanir eru afgreiddar 1-3 virkum dögum eftir að pöntun er staðfest.
Afhendingarleiðir
Baxter.is sendir vörur gegn gjaldi með Íslandspóst. Öll afhending er án endurgjalds ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira.
Greiðslumátar
Baxter.is býður upp á greiðslu með Netgíró og greiðslukorti í gegnum örugga greiðslugátt frá Teya.
Þú velur vöru/r á baxter.is, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd 1-3 dögum eftir að greiðsla hefur borist. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Baxter.is.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Skilafrestur er 14 dagar frá því að skráður viðtakandi fær vöruna afhenta. Varan er þá að fullu endurgreidd með þeim skilyrðum að varan sé óopnuð, í söluhæfu ástandi og greiðslukvittun sé til staðar.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga, gallaða eða skemmda vöru afhenta.
Fái kaupandi ranga, gallaða eða skemmda vöru er kaupanda bent á að senda póst á netfangið baxter@baxter.is með nánari upplýsingum og við leysum málið í sameiningu, sama hvort kaupandi vilji fá endurgreitt eða nýja vöru.
Að öðru leyti er vísað til laga um neytendasamninga (Lög nr. 16, 23. mars 2016) og laga um neytendakaup (Lög nr. 48, 20. mars 2003).
Höfundaréttur
Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.baxter.is eru eign M1A ehf. og er öll afritun og endurdreyfing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá M1A ehf.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
Hafa samband
Velkomið er að hafa samband í gegnum netfangið baxter@baxter.is ef þið hafið einhverjar spurningar.